
Saumaklúbbar hafa verið hluti af íslensku samfélagi frá því um aldamótin 1900. Grunnurinn byggir á reglulegum samverustundum kvenna á heimilum þeirra þar sem hannyrðir, samtöl og þekkingarmiðlun eru í aðalhlutverki. Tilvist og tilgangur saumaklúbba gefur okkur innsýn í tíðaranda og kvennamenningu; hvaða verk þarf að vinna og hvað brennur á hjartanu.
Öðru heimilisfólki en húsmóðurinni er yfirleitt vísað á dyr á meðan klúbbhittingur stendur yfir og því er starfsemi klúbbanna hjúpuð dulúð: Hvað fer þarna fram? Hvaða hlutverki gegna klúbbarnir? Hvaða handverk er unnið? Hvað er rætt? Hvað er borið á borð og hvernig? Innlit í fimm saumaklúbba gefur hugmynd um fjölbreytileikann og hvernig hannyrðir og handverk hafa orðið að verkfæri til að skapa félagsleg tengsl, vinabönd og góðar stundir.
Saumó er hluti af sýningaröðinni „Heimsókn“ á Hönnunarsafni Íslands og viðfangsefnið er hlutverk og form saumaklúbba nú á tímum. Gestir upplifa sig sem „flugu á vegg“ og gægjast inn í ólíka klúbba. Safneignin er skoðuð í nýju ljósi með því að setja íslenska hönnunarsögu og heimilið í samhengi við handverk og saumaklúbba.