Opnun
29.08.202614:00

Saumó

Hvað er eiginlega gert í saumaklúbb? Hámað í sig hundrað sortum af kökum, kjaftað og saumað út í eitt? Heimilisfólki er almennt vísað út á meðan klúbbshittingur stendur yfir svo háttsemi klúbbana verður öðrum dularfull: Hvað fer þarna fram? Hvaða hlutverki gegna þeir? Hvaða handverk er unnið? Hvað er rætt?

 

Saumó er hluti af sýningarröðinni „Heimsókn“ á Hönnunarsafni Íslands. Gestir fá að upplifa sig sem “flugu á vegg” og gægjast á framgang saumaklúbba. Safneign verður skoðuð í nýju ljósi með því að setja handverk og saumaklúbba í samhengi við íslenska hönnunarsögu og heimilið.

Sýningin verður opnuð á Afmælishátíð í tilefni af 50 ára afmæli Garðabæjar.