
Hefjum aðventuna með því að gera okkar eigin jólasápu í smiðju með URÐ á Hönnunarsafni Íslands. Kannski geturðu búið til fyrstu ilmandi jólagjöf ársins? Eða byrjað að undirbúa jólabaðið í góðan tíma! Smiðjan er liður í Aðventuhátíð Garðabær.
Smiðjan er leidd af URÐ sem hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir handgerðar sápur sínar og eru leiðandi ilm- og húðvöruhús. Nafnið URÐ er fornt íslenskt orð sem merkir jörð eða hrjóstrugt landslag. Nafnið vísar þannig í hráefnin sem við notum við framleiðslu varanna. Hjá URÐ samræma villt náttúruöfl Íslands við fágaða ilmhefð Grasse í Frakklandi.