
Miðað við afköst mætti halda að Thelma Björk, fata- og textílhönnuður, hafi dvalið hér í sjöunda veldi. Þetta verður því uppskeruhátíð með meiru.
Í vinnustofudvölinn í Hönnunarsafninu hefur Thelma aðallega unnið útsaum á stóla sem gerðir eru upp í samstarfi við Ásdísi Birgisdóttur bólstrara. Útsaumsaðferð Thelmu má líkja við DJ sem mixar saman tónlist frá ólíkum tímabilum og bætir við nýjum tónum svo úr verður nýtt og kraftmikið danslag.
Hægt er að versla verkin beint frá hönnuðinum. Stólarnir eru á verðbilinu 35,000 – 250,000 kr..
Ljósmynd: Studio Fræ