
LAUF / HJÓLAFERÐ
Lauf Cycles var stofnað árið 2011 af tveimur strákum í Grafarvogi þeim Benedikt Skúlasyni og Guðberg Björnssynis sem finnst skemmtilegast af öllu að hjóla. Í dag starfa 25 starfsmenn hjá fyrirtækinu. Höfuðstöðvarnar eru í Reykjavík, framleiðsla fer að mestu fram í Asíu en samsetning og dreifing í Bandaríkjunum.
Lauf-hjólin hafa markað sér sérstöðu með byltingarkenndri hönnun, fjöðrunargaffli sem er sérstaklega hannaður fyrir lítil högg.
Hönnun hjólanna miðar að því að ná fram hámarksvirkni með sem einföldustum hætti. Þessu fylgja ný form, til dæmis á gaffli og stelli sem ögra staðlaðri ímynd og fagurfræði í hjólabransanum. Fjallahjólið Elja hlaut Hönnunarverðlaun Íslands árið 2025 í flokknum Vara ársins.
Á sýningunni er farið í gegnum þetta ferðalag sem hefur allt í senn verið torfarið, fallegt og skemmtilegt. Til þess að komast áfram hefur vissulega þurft úthald ásamt skilningi á ólíkum þáttum, svo sem verkfræði, fjármagni, einkaleyfum og markaðssetningu, en síðast en ekki síst hefur fyrirtækið reitt sig á gott samstarfsfólk. Það má kalla þetta góða fjöðrun.
Sýningin er styrkt af Safnasjóði
Sýningarstjórn: Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Sigríður Sigurjónsdóttir
TENGINGAR
Að koma auga á tengingar er grunnhæfileiki í hönnunarhugsun. Tengingar sem bæta hluti, virkni, upplifun og líf fólks eða jafnvel tengingar sem mynda eitthvað alveg nýtt og nytsamlegt.
Lauf-hjólagaffallinn sem var upphafið að Lauf-hjólunum spratt einmitt upp úr slíkri tengingu þegar Benedikt Skúlason, ungur verkfræðingur og ástríðufullur hjólreiðamaður, starfaði fyrir Össur við þróun á gervifótum. Fæturnir þurfa að gefa mátulega vel eftir í hverju skrefi og stuðla að jafnvægi. Koltrefjar spila lykilhlutverk í hönnuninni af því að þær eru laufléttar og geta gefið eftir án þess að brotna. Hér kviknaði tenging, koltrefjar hafa verið notaðar í hjólastell til að gera þau létt en ekki til að auka fjöðrun. Af hverju ekki!
Hjól og gervifætur eiga það sameiginlegt að snúast um fjöðrun og jafnvægi. Hvort tveggja eru tæki til að komast ferða sinna, eins konar framlenging á líkamanum.
FRUMGERÐIR
Benedikt og félagi hans, vöruhönnuðurinn Guðberg Björnsson, smíðuðu fyrstu frumgerðirnar af hjólagafflinum í bílskúrnum heima hjá Benedikt í Grafarvoginum árið 2010.
Formið á gafflinum þarf að vera þannig að það gefi eftir (upp og niður) en veiti framhjólinu samtímis fullkominn stuðning. Fyrstu frumgerðirnar voru úr áli, grófar og þungar. Því næst voru notaðar koltrefjar og formin fínstillt og loks hoppað á þeim til að sjá hvernig gafflarnir stæðust álagið. Næst færðu þeir félagar sig upp á háaloft á lögfræðiskrifstofu Skúla, pabba Benedikts, með allt sitt hafurtask. Þeir tóku einnig yfir fundarherbergið þegar skrifstofan var lokuð og notuðu sem verkstæði til að klippa til koltrefjar. Þá smíðuðu þeir gríðarstóran ofn sem var komið fyrir í skjalageymslunni til að geta hitað upp mótin og þannig steypt koltrefjarnar.
Þegar útkoman var orðin ásættanleg settu þeir gaffalinn í bakpoka og keyptu flugmiða til Kína.
Það hefur sýnt sig að á Íslandi er gott umhverfi þegar kemur að því að gera frumgerðir en málið vandast þegar kemur að framleiðslu. Þá þarf að leita annað og Asía er í dag fremst í flokki þegar kemur að framleiðslu reiðhjóla.
FERÐALAGIÐ
Til að byrja með er það hönnuðurinn eða frumkvöðlateymið sem heldur um stýrið, þróar fyrstu útgáfur, framleiðir jafnvel fyrstu vörurnar og er með sýn um hvert skal stefna.
Seinna tekur varan sjálf við og fer með frumkvöðlana í ferðalag sem þeir sáu ekki fyrir.
Upprunalega hugmyndin, að nota gaffalinn á mismunandi fjallahjól, gekk ekki nógu vel upp. Aftur á móti hentaði hann fullkomlega fyrir nýja tegund hjóla, malarhjól. Eiginleiki gaffalsins, að eyða út mörgum litlum höggum, hitti hér beint í mark. Malarhjól áttu fyrst vinsældum að fagna í Bandaríkjunum. Þar voru framsýn fyrirtæki sem gripu tækifærið og innleiddu Lauf Grit Fork við góðar undirtektir. En til þess að nýta eiginleika gaffalsins til fulls og til að verkefnið gengi upp fjárhagslega var lausn Lauf Cycles sú að framleiða eigið hjól.
Árið 2017 kom fyrsta hjólið á markað, Lauf True Grit. Þá tók við ferðalag um þver og endilöng Bandaríkin þar til söluaðilar voru orðnir yfir 100. Hjólið fékk frábæra dóma en það reyndist þungt í vöfum fyrir lítið fyrirtæki að sinna mörgum söluaðilum. Þá var tekin u-beygja og ákveðið að selja öll Lauf-hjól „beint frá bónda“.
SAMFÉLAGIÐ
Veraldlegir hlutir geta haft þann eiginleika að sameina fólk með því að gefa okkur tilfinninguna að við tilheyrum sama liði ef við klæðumst sömu merkjum, keyrum sama bíl eða notum sama forrit. Eftir því sem varan er sjaldgæfari verður tengingin sterkari. Lauf-hjól tilheyra þessum flokki.
Frá því árið 2019 hefur Lauf Cycles staðið fyrir árlegri alþjóðlegri hjólreiðakeppni, RIFT. Keppnin fer fram á Suðurlandi og er einstök á heimsvísu. Þátttakendur hjóla um eldfjallalandslag og víðáttur í síbreytilegu veðri. RIFT er meira en keppni, hún er upplifun sem sameinar þol, ævintýri og tengingu við íslenska náttúru. Síðast en ekki síst myndar keppnin tengingar milli fólks sem á það sameiginlegt að vera ástríðufullt hjólreiðafólk.
HJÓLIN
Í dag er Lauf Cycles með sex tegundir hjóla í boði.
Á bak við hjólin liggja hundruð þúsunda vinnustunda sem farið hafa í hönnun, framleiðsluferli, ferðalög, einkaleyfisumsóknir, fjármögnun, markaðssetningu og góð partí, ásamt náttúru- og hjólaupplifun með fólki alls staðar að úr heiminum.