
Velkomin í hátíðaropnun á HönnunarMars 2026.
Þeir sem koma á hjóli eru heiðursgestir.
Lauf Cycles var stofnað árið 2011 af strákum sem finnst skemmtilegast af öllu að hjóla. Þetta voru þeir Benedikt Skúlason verkfræðingur og Guðbergur Björnsson vöruhönnuður.
Á sýningunni verður farið í gegnum 15 ára ferðalag sem hófst í bílskúr í Grafarvogi og hefur verið allt í senn torfarið, fallegt og skemmtilegt. Hér verður ekki aðeins litið til baka heldur einnig fram á veginn.
Hlutverk hönnuða og þeirra sem fást við nýsköpun snýst gjarnan um að koma auga á möguleika og tækifæri. Í þessu tilfelli varð íslenskur veruleiki með sitt grófa landslag, malarvegi og fjölbreytt veðurfar mótandi afl.
Hjólin hafa markað sér sérstöðu með byltingarkenndri hönnun, fjöðrunargaffli fyrir reiðhjól, sem er sérstaklega hannaður fyrir lítil högg. Hönnunin miðar að því að ná fram hámarksvirkni með sem einföldustum hætti. Þessu fylgja ný form til dæmis á gaffli og stelli sem ögra staðlaðri ímynd og fagurfræði í hjólabransanum.
Boðið verður upp á orkuríkan og bragðgóðan hjólastíg.
Sýningin er styrkt af Safnasjóði