Útgáfa
05.08.202116:00

ÚTGÁFUBOÐ&UPPSKERUHÁTÍÐ

Við fögnum því að Sigmundur P. Freysteinsson sem dvalið hefur í opnu rannsóknarrými safnsins hefur tekið rannsókn sína á textíllitun saman í bókverk sem inniheldur greinargóðan gagnagrunn náttúrulita úr íslensku umhverfi. Samtals um 440 litatónar. Til að byrja með verða einungis gefin út örfá eintök af bókverkinu sem verður fáanlegt á viðburðinum fyrir 25.000 kr.

Sólrún Arnardóttir sem stundar nám í textílhönnun við Central Saint Martins hefur aðstoðað Sigmund við verkið.

Markmiðið með rannsókninni er að kanna möguleika íslenskrar textíllitunar sem umhverfisvænan valkost fyrir framleiðslu á nútíma hönnun. Verkefnið tekur mið af íslenskri jurtalitunarsögu og horfir til framtíðar hvernig við þróum þekkingu á því sem landið gefur.

Verkefnið er styrkt af Hönnunarsjóði.