Við bjóðum Unnar Ara velkomin í vinnustofudvöl í safninu. Hann mun dvelja hér þar til í lok desember.
Unnar Ari Baldvinsson er fæddur á Akureyri, 1989. Hann stundaði nám í Myndlistarskóla Reykjavíkur, Accademia Italiana í Flórens og Florence University of the Arts. Þaðan útskrifaðist hann árið 2013 með gráðu í grafískri hönnun og ljósmyndun. Unnar starfar sem myndlistarmaður og grafískur hönnuður. Hann hefur fengist við fjölbreytt verkefni og þrífst á að takast á við vitræn viðfangsefni á skapandi hátt.