Hjartanlega velkomin á opnun á sýningunni Ull.
Sýningin er sú þriðja í röðinni af sýningum sem haldnar eru í ár í samstarfi við Textílfélagið en félagið fagnar 50 ára afmæli á árinu.
Að þessu sinni eru það verk eftir hönnuðina Maju Sisku og Judith Amalíu Jóhannsdóttur sem hafa verið valin undir yfirskriftinni Ull.