Smiðja
02.02.202513:00–15:00

Skartgripahönnun
FjölskyldusmiðjameðMörtu

Marta Stawarowska er skartgripahönnuður sem stráir glitri og töfraryki yfir hversdaginn. Allir ganga skrautlegri út í skammdegið af þessari skemmtilegu smiðju. Viðburðurinn er hluti af fjölskyldudagskrá Hönnunarsafns Íslands sem fer fram mánaðarlega. Leiðbeinendur eru ýmist fagmenntað hönnunar- og handverksfólk sem veita gestum innsýn í sínar greinar. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.