Hans Jóhannsson, betur þekktur sem Fiðlu-Hansi, er bæjarlistamaður Garðabæjar. Í smiðjunni veitir hann börnum og fjölskyldum innsýn í heillandi fag sitt – hljóðfærahönnun og hljóðfæragerð.
Hans er fiðlusmiður, þekktastur fyrir 21. kynslóðar fiðluna sína sem New York Times valdi sem eina af bestu hugmyndum ársins 2007. Áhugi hans á fyrir fiðlugerð kviknaði í vinnusmiðju afa síns sem var skápasmiður. Hans lauk námi árið 1980 í Newark School of Violin Making í Bretlandi og hefur æ síðan unnið strengjahljóðfæri, bæði rafmögnuð og órafmögnuð, fyrir fjölda tónlistarfólks víða um heim.
Smiðjan er ókeypis og öllum opin. Hún er liður í mánaðarlegri viðburðardagskrá Hönnunarsafnsins fyrir börn og fjölskyldur þar sem opnaðir eru gluggar í ólík fög hönunar og listhandverks.