Árið 2024 skráði Una María Magnúsdóttir ásamt Kötlu Einarsdóttur yfir 8000 verk eftir grafíska hönnuðinn Gísla B. Björnsson fyrir Hönnunarsafn Íslands.
Það var mikill ákafi, áhugi, gleði og uppgötvanir sem einkenndu skráningarferlið. Una María mun nú deila þessari reynslu með okkur.
Kaffi og kleinur í boði og Gísli verður með okkur í spjalli á eftir.
Una María útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Gerrit Rietveld Academie árið 2023. Hún varð alveg óvart sérfræðingur í íslensku keramiki þegar hún skráði mestallt keramik safnsins undir umsjón Bóelar Harnar sérfræðingi safnsins og svo Gísla B. í framhaldinu.
Una hefur brennandi áhuga á bókagerð, textagerð, óhefðbundnum fyrirlestrum og góðum samtölum.
Skránign á verkum Gísla B. Björnsson var styrkt af Safnasjóði og auglýsingastofunni Hvíta húsinu