Leiðsögn
31.01.202113:00

100%ULL

Sunnudaginn 31. janúar er lokadagur sýningarinnar 100% ULL. Af því tilefni ætla Birgir Örn Jónsson sýningarstjóri og Sigríður Sigurjónsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands að vera með leiðsögn um hana þann sama dag.

Ullarvinnsla hefur löngum verið samofin handverks-og iðnaðarsögu þjóðarinnar og eru nú um 750 tonn af ull nýtt í ullarframleiðslu á hverju ári. Á sýningunni er hægt að fræðast um sex ólík verkefni íslenskra hönnuða og fyrirtækja þar sem íslenska ullin er nýtt á ýmsa vegu. Þeir hönnuðir og fyrirtæki sem taka þátt í sýningunni eru Kula by Bryndís, Ásthildur Magnúsdóttir vefari, Ró, Kormákur og Skjöldur, Magnea og Ístex.

Vegna fjöldatakmarkana mælum við með því að kaupa miða á viðburðinn fyrirfram. Hér er tengill á miðasöluna: https://tix.is/is/event/10879/lei-sogn-um-syninguna-100-ull/