Unnar Ari Baldvinsson er fæddur árið 1989 á Akureyri. Hann stundaði nám í Myndlistarskóla Reykjavíkur, Accademia Italiana í Flórens og Florence University of the Arts. Þaðan útskrifaðist hann árið 2013 með gráðu í grafískri hönnun og ljósmyndun. Unnar starfar sem myndlistarmaður og grafískur hönnuður. Hann hefur fengist við fjölbreytt verkefni og þrífst á að takast á við vitræn viðfangsefni á skapandi hátt.
Unnar er meðal annars þekktur fyrir seríu af verkum undir yfirskriftinni Sundform. Þetta eru prentverk byggð á öllum 106 manngerðum sundlaugum á Íslandi. Á meðan á dvölinni stendur mun Unnar Ari gefa sér tíma til að klára þetta verkefni svo það verði aðgengilegt í netverslun hand, samræma og klára pappírsverkin, þróa smiðju í samvinnu við safnið og skoða freakri vöruþróun tengda verkefninu.
Gesti geta verslað verk beint af Unnari ara á meðan á vinnustofudvölinni stendur.
Ljósmynd: Sunna Ben