14.11.2026–07.02.2027

JesEinarÞorsteinsson
Arkitekt

Jes Einar Þorsteinsson fæddist í Vestmannaeyjum þann 5. september 1934 og lést 30. júní 2024. Hann nam myndlist við Académie de la Grande Chaumière og arkitektúr við École nationale supérieure des Beaux-Arts í París á árunum 1954–1967. Eftir heimkomu hóf Jes Einar rekstur teiknistofu í eigin nafni og hannaði margar byggingar, flestar á sviði íþrótta og heilsugæslu. Meðal þekktari verka hans eru Skeiðalaug í Brautarholti og heilsugæslan og tónlistarskólinn á Seltjarnarnesi.

Samhliða rekstri teiknistofunnar var Jes Einar virkur í félagsstörfum og gegndi meðal annars hlutverki formanns Arkitektafélags Íslands 1984 og 1985. Hann átti þátt í því að stofna ÍSARK, félag sem lagði grunninn að arkitektúrkennslu á Íslandi. Árið 2013 var Jes Einar kjörinn heiðursfélagi AÍ.

Í verkum Jes Einars eru brútalísk áhrif greinileg. Notkun hans á hrárri steypu má rekja til námsáranna í Frakklandi og áhuga hans á Le Corbusier, sem hann nefndi meðal sinna eftirlætisarkitekta, ásamt Tadao Ando og Steven Holl.

Eitt af höfuðeinkennum arkitektúrs Jes Einars eru steinsteyptir veggir með sýnilegri áferð timburborðamóta. Ytra byrði var jafnan málað hvítt eða grátt en að innan fékk steypan að standa ómeðhöndluð. Jes Einar útfærði glugga sem hafa þá sérstöðu að gluggapóstar sjást einungis innan frá. Í gluggaröðum aðskildi hann gluggana með steyptum bitum sem gengu út frá útveggjum og skapaði þannig uppbrot í útliti. Í tréverki, bæði utan- og innandyra, vann hann gjarnan með douglas-greni.

Sérstaða Jes Einars birtist meðal annars í nálgun hans á mótun rýmis. Ólíkt mörgum samtíma arkitektum sem unnu í anda módernismans þar sem hið frjálsa plan með sýnilegu burðarvirki var algengt, hafði Jes Einar frekar sjálfa rýmismótunina að leiðarljósi. Burðarvirkið fylgdi á eftir. Með slíkri nálgun brotnar útlit húsanna upp og opnanir myndast á óvæntum stöðum.

Á sýningunni eru tekin fyrir sjö ólík verkefni sem endurspegla helstu höfundareinkenni arkitektsins.

Sýningarstjórn: Haukur Hafliði Nínuson og Katrín Heiðar

Ljósmyndir teknar árið 2026: Marinó Thorlacius

Sýningin er styrkt af Safnasjóði