Vinnustofudvöl
13.02.2026–10.05.2026

Flétta

 

Vöruhönnuðirnir Birta Rós Brynjólfsdóttir og Hrefna Sigurðardóttir stofnuðu Fléttu árið 2018.

Hjá tvíeykinu er hringrásarhagkerfið, handverkið ásamt samfélagsábyrgð  í aðalhlutverki þegar afskrifaður efniviður fær nýtt hlutverk í formi hágæða hönnunarvöru. Það sem einkennir verkin eru sköpunar- og  leikgleði í bland við gagnrýna hugsun varðandi sóun og neysluvenjur. Í tengslum við þessar áherslur í framúrskarandi hönnunarverkefnum hlutu þær Hönnunarverðlaun Íslands árið 2024.

Þær munu dvelja á safninu við störf í þrjá mánuði og kynna nýja vöru á HönnunarMars 2026.

Gestir geta verslað beint við hönnuðina eða í gegnum safnbúð Hönnunarsafnsins.