
Árið 2014 færði arkitektinn Einar Þorsteinn Ásgeirsson (1942-2015) Hönnunarsafni Íslands allt innvols vinnustofu sinnar að gjöf. Um er að ræða dagbækur, módel, ljósmyndir, málverk, skissubækur, húsgögn og fleira sem tengist lífi hans og störfum, samtals um 1500 munir.
Einari er best lýst sem sannkölluðum endurreisnarmanni. Hann starfaði um langt skeið með myndlistarmanninum Ólafi Elíassyni, meðal annars við hönnun glerhjúps tónlistarhússins Hörpu. Hann var á undan sinni samtíð hvað varðar hugmyndir um sjálfbærni, samanber kúluhúsin sem hann hannaði og voru reist um 1980.
Fram að áramótum mun safn Einars Þorsteins Ásgeirssonar vera skráð fyrir opnun tjöldum í Safninu á röngunni. Hér geta gestir fylgst með þegar hlutir eru teknir upp úr kössum, ljósmyndaðir, skráðir í safnmunaskrá og loks pakkað eftir kúnstarinnar reglum. Markmiðið er að hluturinn varðveitist en sé um leið aðgengilegur ásamt þeim upplýsingum sem til eru um hann.
Umsjón með skráningunni hefur Jóhanna Ásgeirsdóttir.
Verkefnið er styrkt af Safnasjóði