
Smiðjan Dúkkulísufatahönnun opnar heim fatahönnunar fyrir nemendum á nýstárlegan hátt. Bekkurinn vinnur heildstæða fatalínu saman en hver nemandi fær að vinna sína dúkkulísu frá toppi til táar með sínu nefi. Á smiðjunni eru hugtökin sníðagerð, textíll og fatalína kynnt í samhengi við safngripi sem eru til sýnis á safninu. Í innlögn er komið inn á sjálfbærni og umhverfisvernd. Nemendur þjálfast í að leggja snið á efni, hugsa sem einstaklingur inn í heildræna fagurfræði. Smiðjan hentar nemendum á miðstigi afar vel og þjálfar í senn skapandi hugsun og fínhreyfingar.
Umsagnir nemenda:
„Hey, ég var búin að gleyma því að við værum tæknilega séð í skólanum! Mig langar ekki að fara!“
Umsagnir kennara:
„Þetta er svo girnilegur efniviður og gaman að sjá krakkana alveg sökkva sér ofan í verkefnið.“
Hægt er að bóka DúkkuLísur hér:
Bókanir – DúkkuLísur