
Þráðurinn hlykkjast undir og yfir, undir og yfir og við dáleiðumst með. Vefnaðarsmiðja leiðir fjölskyldur inn í heim textílhönnunar undir leiðsögn hönnuða frá ÞYKJÓ. Við leikum okkur með fjölbreyttan efnivið og áferðir og eigum notalega samverustund á sunnudags eftirmiðdegi. Kannski endarðu með teppi fyrir lítinn bangsa, einstakt bókamerki eða hárband – við hlökkum til að sjá hvaða hugmyndir fæðast!
ÞYKJÓ er hönnunarstofa sem hefur hlotið athygli hér heima og erlendis fyrir metnaðarfull og fjölbreytt verkefni fyrir börn á sviði innsetninga, vöruhönnunar og upplifunarhönnuanr. Þau eru þekkt fyrir Hljóðhimna í Hörpu, húsgögn og vöruhönnun í Menningarhúsum Kópavogs og Tulipopland leikvöllinn á Keflavíkurflugvelli. ÞYKJÓ hafa hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir störf sín, þeirra á meðal eru Hönnunarverðlaun Íslands 2024, YAM Awards 2023 og SVEF verðlaunin 2021.
Smiðjan er hluti af viðburðarröð á vegum Menningar í Garðabæ og Hönnunarsafnsins. Fjölskyldudagskráin er fastur liður í hverjum mánuði, en efnistök og smiðjuleiðbeinendur eru breytileg. Aðgangur er ókeypis og opinn öllum!