Fyrirlestur
25.10.202613:00

SögulegarbyggingaríGarðabæ

Sunnudaginn 25. október klukkan 13 flytur Pétur H. Ármannsson arkitekt erindi í Hönnunarsafni Íslands.

Garðabær á sér mun ríkulegri byggingararf en ætla mætti í fljótu bragði. Í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar mun Pétur H. Ármannsson arkitekt fjalla um nokkrar sögulegar byggingar í Garðabæ frá ólíkum tímaskeiðum sem vitna um þróun byggðar og samfélags á ólíkum tímaskeiðum í sögu bæjarfélagsins. Sum þessara verka þóttu tíðindum sæta í íslenskri byggingarlist á sínum tíma og standa enn í dag sem sem vitnisburður um það besta í verkkunnáttu og listfengi genginna kynslóða.

Aðgangur er ókeypis en fólk beðið að skrá sig þar sem sætafjöldi er takmarkaður. Hægt er að skrá sig hér:
https://bookings.cloud.microsoft/book/Hnnunarsafnviburir@gardabaer.is/s/GKHhWvtfHEuiuRiQ6bUN9A2?ismsaljsauthenabled