
Hélène Magnússon prjónahönnuður heldur fyrirlestur um prjónalistakonuna Aðalbjörgu Jónsdóttur (1916-2018).
Aðalbjörg var meðal þekktustu og virtustu prjónalistakonum landsins. Hún naut talsverða vinsælda fyrir viðhafnarkjóla sem hún prjónaði úr íslenskri ull á áttunda ártugnum en Hönnunarsafn Íslands varðveitir einn kjól eftir hana frá þeim tíma sem frú Vigdísi Finnbogadóttur gaf safninu. Árið 2018 var Aðalbjörg sæmd riddarakrossi hinar íslensku fálkaorðu fyrir framlag hennar til íslenskrar prjónahefðar og hönnunar.
Hélène er frönsk að uppruna. Hún lauk meistaraprófi í lögfræði og starfaði um skeið sem lögmaður í París. Árið 1995 flutti hún til Íslands þar sem hún vann árum saman sem fjallaleiðsögumaður meðfram því að læra textíl og fatahönnun við Listaháskóla Íslands. Héléne er ötull prjónahönnuður og hefur gefið út fjölda uppskriftabóka. Hún framleiðir garn úr íslenskri lambsull og er frumkvöðull með vinsælar göngu- og prjónaferðir síðan 2010.
prjonakerling.is
Aðalbjörg og Hélène kynntust árið 2007 og myndaðist sterk vinátta á milli þeirra. Síðastliðin ár hefur Hélène unnið að bók um Aðalbjörgu og búið til prjónauppskriftir af völdum kjólum eftir hana.