Námskeið
14.10.202117:00

FRÍHENDISFLÓRA
ÚtsaumsnámskeiðmeðSunnuÖrlygsdóttur

Námskeiðið hefst fimmtudaginn 14. október kl. 17–19 og fer fram þrjá fimmtudaga í röð. Verð 12.500 kr. Aðeins 12 pláss í boði. Hægt er að bóka hér: https://tix.is/is/event/12153/

Fyrir hverja: Byrjendur í útsaumi (ekki er þörf á að hafa neinn grunn í útsaumi)
Hvað er „frjáls útsaumur“?
Útsaumur þar sem ekki þarf að telja út í java/stramma og án þess að stuðst sé við forskrift – þannig er það frjálsari útsaumur en til að mynda harðangur, klaustur og ýmiss hvítsaumur.
Markmið: Að þátttakendur öðlist grunn í útsaumi sem hægt er að nota til skreytingar á ýmsum textíl og geti saumað út sér til gagns og gleði.
Hvað þarf að koma með?
Gott að mæta með eigin skæri. Útsaumshring og fingurbjörg ef vill (ekki nauðsynlegt).
1. skipti
Þátttakendur sauma lítinn prufuklút með sjö mismunandi útsaumssporum – t.d. leggsaumi og frönskum hnútum – sem nýtast vel þegar sauma á fríhendis.
2. skipti
Þátttakendur halda áfram að tileinka sér að sauma út með útsaumssporunum sem farið var yfir í fyrri tíma. Innblástur að næsta verkefni fenginn öðrum þræði úr íslenskri flóru. Farið yfir samspil lita og efnis og eins hvernig ná má fram mismunandi áferð með ýmiss konar útsaumsgarni.
3. skipti
Þátttakendur hvattir til að mæta með textíl, t.d. gamla flík, sem hægt væri að skreyta með útsaumi, t.d. á kraga eða framan á ermalíningum.