Opnunogverðlaunaafhending
16.01.202616:00

FallegustubækuríheimiogÍslenskubókahönnunarverðlaunin

Íslensku bókahönnunarverðlaunin verða afhent í fyrsta sinn.

Á sama tíma opnar sýningin Fallegustu bækur í heimi, með bókum sem hafa hlotið alþjóðlegu verðlaunin Best Book Design from all over the World sem Stiftung Buchkunst hefur staðið fyrir í rúm 50 ár. Samtals eru þetta 14 bækur sem gestir geta flett og skoðað á sýningunni. Bókin sem hlaut aðalverðlaunin “Goldene Letter” er Forget Me Not / Vergissmeinnicht hönnuð af Rudy Guedj.

Til viðbótar við alþjóðlegu bækurnar verða á sýningunni þær bækur sem tilnefndar eru til Íslensku bókahönnunarverðlaunanna 2026.

Að verðlaununum standa Félag íslenskra bókaútgefenda (FÍBÚT) og Félag íslenskra teiknara (FÍT). Veitt verða verðlaun fyrir framúrskarandi bókahönnun í tveimur flokkum, annars vegar fyrir bestu bókarkápuna og hins vegar bestu bókarhönnunina.

Allar tilnefndar bækur verða lagðar fram til verðlauna Stiftung Buchkunst fyrir Íslands hönd.

Það verður gott að hittast.