
Studio Flétta leiða spennandi smiðju á sviði vöruhönnunar þar sem umhverfisvernd og sjálfbærni eru í brennidepli. Hönnuðirnir hafa hlotið verðlaun og viðurkenningar hér heima og erlendis fyrir vistvæna og frumlega nálgun sína á vöruhönnun.
Smiðjan er hluti af mánaðarlegri fjölskyldudagskrá Hönnunarsafnsins og Menningar í Garðabæ. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.