Fjölskyldusmiðja
12.04.202613:00–15:00

TöskuhönnunmeðStudioFléttu
FjölskyldusmiðjameðStudioFléttu

Geta gamlar buxnaskálmar umbreyst í splunkunýja tösku?!

Á töskusmiðju með Studio Fléttu hanna þátttakendur og skapa eigin töskur úr endurnýttum textíl á borð við gamlar buxur, skyrtur og kjóla. Lögð er áhersla á að nýta það sem til er, skoða möguleika efnisins og umbreyta því í persónulega tösku.

Vöruhönnuðirnir Birta Rós Brynjólfsdóttir og Hrefna Sigurðardóttir mynda hönnunarteymið Studio Fléttu, en þær eru nú í vinnustofudvöl á Hönnunarsafninu. Hönnuðirnir hafa hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga hér heima og erlendis fyrir vistvæna og frumlega nálgun sína á vöruhönnun, þar á meðal eru Hönnunarverðlaun Íslands 2023.

Viðburðurinn er hluti af mánaðarlegri fjölskyldudagskrá Hönnunarsafnsins og Menningar í Garðabæ sem opna glugga inn í ólíkar greinar hönnunar og listhandverks. Smiðjurnar eru ávallt leiddar af fagfólki á sínu sviði og aðgangur er ókeypis og öllum opinn.