
Óróarnir eftir Önnu Gullu eru gerðir úr heimaræktuðu rúghálmi og vír. Hún leyfir innsæinu ráða för og beitir bæði hefðbundnum og óhefðbundnum aðferðum við samsetningu verkanna. Þau taka á sig sjálfsprottið form sem leikur sér með ljós, jafnvægi og spennu.
Innblásin af því hvernig gras kaffærir girðingum smám saman, sem og hugmyndum úr óreiðufræði og róttækri brothættu, veltir hún upp spurningum um hugmyndir okkar um styrk. Til þess notar hún samspil efna.
Verkin eru í senn fáguð og villt.
Anna Gulla starfar sem hönnuður og handverkskona á Íslandi og í Svíþjóð. Hún er hluti af hönnunardúóinu HAGE studio, sem leggur áherslu á að vinna með náttúruleg efni í sérhönnuðum höttum og yfirfatnaði, auk skúlptúrlegra hluta.
Árið 2018 útskrifaðist hún af keramikbraut Myndlistaskólans í Reykjavík. Anna Gulla lærði hattagerð við Cutters Academy í Gautaborg á árunum 2009–2011 og árið 2021, eftir tíu ár í faginu, hlaut hún meistararéttindi í hattagerð.
Eftir listamannadvöl í Svíþjóð árið 2022, þar sem hún rannsakaði efnið rúghálm, hefur hún haldið áfram að vinna með það í fatnaði og skúlptúrum, auk þess að halda vinnustofur um hálm.