KE&PB er samstarf grafísku hönnuðanna Kötlu Einarsdóttur og Patreks Björgvinssonar. Þau kynntust í námi við Listaháskóla Íslands og útskrifuðust þaðan árið 2022. Þau deila áhuga á alþýðumenningu, handverki og efnismenningu heimilisins.
Saman hafa þau unnið ýmis grafísk verkefni, nú síðast verkefnið Skraf en það er stafrófskerfi sem byggir á gömlu íslensku vefnaðarmynstri. Í vinnustofudvöl á Hönnunarsafninu munu KE&PB að halda áfram að þróa Skraf og finna snertifleti fyrir mynstrin í samhengi við eldhúsið.
Skraf leitast eftir því að gefa gamalli sagnahefð vefnaðar stað í hönnunarheimi samtímans. Mynsturgerðinni, sem oft er litið fram hjá, er gefið nýtt hlutverk á mótum þess gamla og nýja, handverks og hönnunar. Skraf gefur notandanum tækifæri til þess að tjá sig á leynimáli, segja frá á þann hátt að sá sem horfir þarf að leggja sig fram við að skilja. Hæg samskipti í hröðum heimi.